16.9.2007 | 16:56
Óvitar frumsýndir
Óvitum var afar vel tekið á frumsýningu í gærkvöldi og ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að linna að lokinni sýningu. Listrænum stjórnendum, leikurum og barnaleikurum var fagnað ákaft en allt ætlaði um koll að keyra þegar Guðrún Helgadóttir steig á svið. Mikill áhugi er á Óvitum og þegar er uppselt á 10 sýningar verksins og sala langt komin á næstu átta.
Óvitar! eftir Guðrúnu Helgadóttur
Frábær fjölskyldusýning!
Frumsýning 15. september. Miðasala í fullum gangi í síma 4 600 200 og www.leikfelag.is
Í Óvitum er allt á hvolfi. Þar minnkar maður með aldrinum, fullorðnir leika börn og börnin leika þá fullorðnu. Það er þó ekki fyrr en Finnur strýkur að heiman sem allt fer endanlega í háaloft. Lögreglan og hjálparsveitirnar hefja leit, pabbi og mamma eru miður sín og jafnvel skólastjórinn brestur í grát. En í miðjum látunum eignast Finnur nýjan vin og uppgötvar ýmislegt um lífið og hvernig það er að verða lítill.
Smelltu hér til að hlusta á lagið "Þá var trallað".
Smelltu hér til að fá leikskránna á pdf-formi.
Þetta margrómaða leikrit Guðrúnar Helgadóttur er nú loks sýnt á Akureyri og nú með tónlist sem Jón Ólafsson hefur samið af sinni alkunnu snilld. Leikarinn ástsæli Sigurður Sigurjónsson leikstýrir glæsilegum hópi atvinnuleikara og hæfileikaríkra barna. Frábær skemmtun fyrir afa og ömmur, pabba og mömmur og börn - stór og smá.
Höfundur: Guðrún Helgadóttir
Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson
Söngtextar: Davíð Þór Jónsson
Tónlist og tónlistarstjórn: Jón Ólafsson
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson
Búningar: María Ólafsdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Hreyfingar: Ástrós Gunnarsdóttir
Gervi: Ragna Fossberg
Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson
Leikarar: Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Þráinn Karlsson, Alda Ólína Arnarsdóttir, Arna Ýr Karelsdóttir, Arnar Þór Fylkisson, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Elmar Blær Arnarsson, Fjölnir Brynjarsson, Friðrik Karlsson, Gyða Jóhannesdóttir, Jóhanna Þorgilsdóttir, Kristín Alfa Arnórsdóttir, Magnús Ingi Birkisson, My Adina Lottisdóttir, Ólafur Göran Grós Ólafsson, Ólafur Ingi Sigurðarson, Rán Ringsted, Sólrún Svava Kjartansdóttir, Valentína Björk Hauksdóttir
Tónlistin úr verkinu kemur út á geisladiski og leikritið á bók á vegum Eddu útgáfu í byrjun september.
Sett upp í samstarfi við Flugfélag Íslands, Norðurorku, KEA hótel
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.